Taka þátt
Við óskum eftir þínum stuðningi!
Aðeins með samstilltu átaki getum við staðið vörð um íbúðabyggð á Kársnesi.
Þú getur lagt baráttunni lið með ýmsu móti:
- Skráð þig í samtökin - þeir sem skrá sig fyrir 21. ágúst teljast stofnfélagar.
- Skráð þig á mótmælalista sem afhentur verður bæjaryfirvöldum
- Sett upp mótmælaborða eða - spjald við húsið þitt
- Hvatt nágranna þína og vini að láta að sér kveða
- Látið álit þitt í ljós í blaðagreinum eða með bloggi
- Skráð þig á póstlistann okkar og fylgst með framvindu mála
Hægt er að nálgast tilbúna mótmælaborða með því að senda okkur póst á karsnes@gmail.com eða með því að hringja í gsm 896 1524 (Arna) eða gsm 820 2545 (Þórarinn).Að sjálfsögðu er engin skylda að nota tilbúnu borðana og um að gera að leyfa sköpunargleðinni að njóta sín við, fyrir þá sem vilja gera sína eigin.

Leave a Reply