Leita:

Karsnes.is

Betri byggð á Kársnesi

Um okkur

Betri byggð á Kársnesi eru samtök sem hafa það að markmiði að standa vörð um lífsgæði íbúa í vesturbæ Kópavogs. Kveikjan að stofnun samtakanna eru tillögur Kópavogsbæjar að nýju framtíðarskipulagi vestast á Kársnesi. Hér getur þú aflað þér upplýsinga um málefnið, gerst félagi í samtökunum og látið skoðun þína í ljós. Taktu þátt.
Stöndum vörð um Kársnesið.

Framlög

Betri byggð á Kársnesi nýtur ekki tekna í formi félagsgjalda, en óhjákvæmilega fellur ýmiss kostnaður til í starfseminni.  Félagar og stuðningsaðilar hafa sýnt áhuga á að leggja málefninu lið í formi frjálsra fjárframlaga.  Þeir sem vilja taka þátt í baráttunni með þessum hætti geta lagt inn á reikning samtakanna nr. 0537-26-600707, kennitala 600707-2130.

Við færum þeim sem þegar hafa veitt samtökunum fjárhagslegan stuðning innilegar þakkir fyrir.

Reader's Comments

  1. Ingólfur Hjörleifsson |

    Sæl.

    Ég fékk borða í hús hér á Borgarholtsbraut 68 eftir beiðni, og einhver í samtökunum ætlaði að meila á mig reikningsnúmeri. Það barst ekki en ég ætla að greiða 5000 kallinn inn á reikninginn ykkar. r. 0537-26-600707, þá vitið þið það.

    Baráttukveðjur.

    Ingólfur Hjörleifsson

Leave a Reply