Leita:

Karsnes.is

Betri byggð á Kársnesi

Um okkur

Betri byggð á Kársnesi eru samtök sem hafa það að markmiði að standa vörð um lífsgæði íbúa í vesturbæ Kópavogs. Kveikjan að stofnun samtakanna eru tillögur Kópavogsbæjar að nýju framtíðarskipulagi vestast á Kársnesi. Hér getur þú aflað þér upplýsinga um málefnið, gerst félagi í samtökunum og látið skoðun þína í ljós. Taktu þátt.
Stöndum vörð um Kársnesið.

Hafðu samband

Ertu með hugleiðingar, athugasemdir, grein eða annað efni sem þú vilt koma á framfæri? Þá er netfangið okkar karsnes@gmail.com. Þú getur einnig haft samband Þórarinn Ævarsson í síma 820 2545 eða Indriða Björnsson í síma 898  0886.

Reader's Comments

  1. Eyjólfur Karlsson |

    Sæl.
    Mig langaði til að lýsa yfir ánægju minni við þessu framtaki ykkar að stofna þessi samtök,ég og mín fjölskylda fluttum í vesturbæinn til að komast í gamalt og gróið hverfi og losna við umferðina.
    Því miður er bæjarstjórnin á öðru máli og þar sem ég er nú alin upp í bænum,og vill hafa vesturbæinn óbreyttan,þá er maður hundfúll yfir þessu skipulagsslysi.
    Annars langaði mér að segja ykkur að við fluttum í Kópavoginn í janúar 2006 og við höfum ekki enn fengið heilsugæslulækni í okkar hverfi og líka að við biðum í 8 mánuði eftir leikskólaplássi fyrir barnið okkar ,sem átti að vera á forgangi því hann varð 5 ára á árinu sem þegar við sóttum um plássið.
    Miðað við þessa reynslu þá maður veltir því óneitanlega fyrir sér hvernig þeir ætli að ráða við 4000 þúsund íbúa í viðbót.
    Ég allavega býst ekki við neinum kraftaverkum.

    Kveðja

    Eyjólfur.

  2. Sigmundur B. Guðmundsson |

    Heil og sæl,

    Datt í hug að senda ykkur línu og segja frá bílatalningu sem ég gerði. Talningin, sem sennilega telst “óvísindaleg”, fór fram 12. júlí s.l. kl. 21:45-22:00. Á þessu korteri fóru 85 bílar fram hjá húsinu. Þetta gera 340 bílar á klukkustund, sem er ansi mikið þegar haft er í huga bæði árstími og tími sólarhrings.

    með baráttukveðjum,
    Sigmundur B. Guðmundsson
    Kársnesbraut 51A

  3. Bryndís Ólafsdóttir |

    Komið þið sæl.
    Ég bý í einu af þeim húsum á Kársnesinu þar sem umferðarþunginn er hvað mestur. Þau 14 ár sem ég hef búið hér hefur umferðarþunginn stöðugt aukist og er nú þegar full þörf á róttækum aðgerðum til að draga úr hávaða og mengun frá Kársnesbrautinni. Það er bara ekki hægt að bjóða íbúum upp á að umferðin meira en tvöfaldist og þar við bætist þungaflutningar. Allt tal um að bættar almenningssamgöngur og bann við nagladekkjum muni koma á móti auknum umferðarþunga er bara móðgun við hugsandi fólk, strætó er ekki raunhæfur möguleiki fyrir fólk eins og þjónustunni er háttað í dag.
    Það er ekki verið að hugsa um að bæta íbúabyggð á nesinu með þessum tillögum bæjarstjórnar, þvert á móti ganga þær út á að minnka lífsgæði hjá þeim sem fyrir eru.

    Bryndís Ólafsdóttir
    Helgubraut 10

  4. Margrét Blöndal |

    Ég vil byrja á að hrósa íbúasamtökunum fyrir frábært starf og skora á fleiri íbúa í Kópavogi að taka höndum saman við að berjast gegn skipulagsslysinu.
    Vesturbærinn í Kópavogi er gróinn, fallegur og rólegur staður að búa á en það á að eyðilegggja. Það má líkja þessari eyðileggingaráætlun við að sett væri landfylling við sjávarsíðuna á Ægissíðu í vesturbæ Reykjavíkur og byggt þar - það yrði klárlega kæft af íbúum. Ég skora á íbúa á höfuðborgarsvæðinu að taka þátt í umræðunni og veita okkur í fámenninu liðsinni.
    Það er með eindæmum hvernig öllu þessu máli hefur verið þjösnað áfram og mjög einkennilegar dagsetningar - kynningarfundur rétt fyrir jól og frestur til að skila inn mótmælum rétt fyrir verslunarmannahelgi. Minnir mann á skjól nætur! Ég hef ekki ennþá heyrt jákvæðar viðtökur frá öðrum íbúum en þeim sem vinna að því að þröngva þessu slysi upp á Kársnes. Hvað þarf til að hlustað sé á íbúa? Við verðum að taka höndum saman og vekja athygli fjölmiðla á þessu máli. Ég auglýsi eftir fleiri málefnanlegum aðferðum til að stöðva þetta skipulagsslys!!!!!!!

    Baráttukveðjur
    Margrét Blöndal
    Holtagerði 64
    Kópavogi

  5. Hákon Ásgeirsson |

    Ég setti mína skoðun á blað sem má lesa hér http://www.almaoghakon.com/?p=196

  6. Gunnhildur Hreinsdóttir |

    Frábær fundur í gær. Samstaða íbúa Kársnes var einstök og einhuga. Mér varð hugsað til orðs Jóns Sigurðssonar “vér mótmælum allir” Nú er bara að fylgja eftir hugsjónum okkar svo ekki verði valtrað yfir okkur og þessi litla vinarlega byggð verði ekki breytt í stórborg,,

  7. Ingibjörg Hinriksdóttir |

    Til hamingju með fundinn í Salnum, frábær samstaða sem þar kom fram.
    Á fundinum komu m.a. fram vangaveltur um hvort kjósa ætti um skipulag og þá hvort aðeins íbúar Kársness mættu taka þátt í þeirri kosningu. Bæjarstjórinn vildi að Kópavogsbúar allir fengju að kjósa, EF efnt yrði til kosnina. Þó vissulega megi segja að eðlilegast væri að aðeins þeir sem búi á Kársnesi ættu að kjósa þá tek ég undir með Örnu Harðardóttur um að ég efast ekki um að aðrir Kópavogsbúar myndu standa við bakið á ykkur í þessu máli. Það geri ég a.m.k. heilshugar.
    Skoðanir mínar um þetta mál og mörg önnur má lesa á vefsíðu minni http://www.ingibjorg.net

    kv. Ingibjörg Hinriksdóttir

  8. Ólafía M Guðmundsdóttir |

    Mig langar að taka undir með öllum sem hafa sett fram sitt viðhorf í þeirri baráttu sem nú fer fram gegn fyrihuguðu skipulagi hverfisins okkar á Kársnesi.
    Ég tek heils hugar undir þau mótmæli sem hvarvetna má sjá og heyra gegn fyrirhuguðum breytingum á svæðinu eins og bæjaryfirvöld hafa kynnt þær. Ég lýsi líka furðu minni á framgöngu bæjarstjóra fyrir hönd bæjarstjórnar þar sem hann leggur sig mest fram um að reyna að gera tortryggileg samtökin sem berjast gegn þessu skipulagsslysi. Það hefur löngum verið aðalsmerki þeirra sem vilja sýna góða stjórnunarhætti, hvort sem í stóru eða smáu, að hlusta á raddir þeirra sem hafa veitt þeim umboð til stjórnunar. Ekki virðist bæjarstjóri Kópavogs hafa mikinn áhuga á því og þykir mér það miður. Mér þætti fróðlegt að heyra í fleiri bæjarfulltrúum varðandi þessi skipulagsmál og heyra hvað þeim finnst um mótmæli okkar.
    Að lokum vil ég þakka framtak ykkar sem stofnuðuð samtökin um betri byggð á Kársnesi - hana má bæta en það má fyrr rota en dauðrota.

  9. Kristbjörn Árnason |

    Íbúar á Kársnesi, til hamingju. 16. september 2007
    Fært af krissi undir Óflokkað, Stjórnmál, Umhverfi, Menning og listir, Umræðan. bakvísun
    Það er vissulega full ástæða til þess að óska íbúum á Kársnesi og samtökum þeirra til hamingju með þennan áfangasigur og einnig forystumanni þessara samtaka. Það er í sjálfu sér ekki einfalt mál að tekin sé af dagskrá sú gamla og gróna stefna að byggja hafskipahöfn á Kársnesi. Það hefur alla tíð verið hugsjón eldri Kópavogsbúa að byggja þarna höfn og nýta þær náttúrulegu aðstæður sem þarna eru fyrir hendi. Þ.e.a.s. að Löngusker úti í Skerjafirði brjóta hafölduna svo aldrei eru stórsjóar inni á vogunum. Allir stjórnmálaflokkar í Kópavogi hafa haft þetta mál á stefnuskrá sinni frá því Bærinn byggðist. Úr því sem komið er væri það mesta óráð að byggja þarna höfn með öllu því sem því fylgdi. Hafnar - hugsjónin var í raun hluti af sjálfstæðisbaráttu Kópavogsbúa.

    Nú er lag til að skoða nýja hluti. Þó að stjórnmálaflokkum finnist mikilvægt nú, eftir þessa niðurstöðu að koma strax fram með nýjar tillögur er það bara einhver taugatitringur. Nú er mikilvægt að staldra við til að skoða t.d. hvað stendur þarna enn úr fortíðinni sem vert væri að hlúa að og til að nýta til framtíðar. Samkvæmt nýjum hugmyndum og væri raunar jafnvel æskilegt að hafa hugmyndasamkeppni um hvernig æskilegt væri að þessi byggð þróaðist. Byggja þannig upp samstöðu og samheldni. Skapa þarna lítið bæjarhjarta sem Kópavogsbúar gæti orðið stoltir af.

    Kópavogur er mjög ungur bær jafnvel á mælikvarða íslenskra sveitarfélaga. Ekki eru t.d. til margar minjar frá eldri tíð. Þarna úti á nesinu stendur enn gamla Clausenshúsið sem er örugglega eitt elsta húsið í Kópavogi. Þetta hús var byggt í glæsilegum herragarðsstíl og stóð raunar lengstum autt. Hús sem myndi sóma sér hvar sem er á Íslandi stórfallegt hús sem gæti orðið gullmoli í hvaða bæ sem er. Í mörg ár var rekin í þessu húsi efna- og síðan sælgætisgerð. Clausenshús hlýtur að hafa verið vel byggt á sinni tíð því annars væri það löngu horfið. Þegar ég kom í Kópavog um og eftir 1950 stóð þetta fullbúna hús autt og ekkert notað. Þá voru þarna örfá hús sem ég held að séu löngu farin. Það hefur verið þrengt sérlega illa að þessu húsi og það hefur verið farið einstaklega illa með það. Það væri sómi að því fyrir bæjaryfirvöld að endurbyggja þetta hús og fá því veglegt hlutverk. Það gæti verið listasafn eða einhver menningarmiðstöð. Það yrði auðvitaða að gefa þessu húsi það rými sem það á skilið

Leave a Reply