Ólöglegar landfyllingar
BBK hefur ítrekað lýst þeirri skoðun sinni að þær landfyllingar sem hafa farið fram á Kársnesi undanfarin ár séu ólöglegar. Á kynningarfundi vegna svæðisskipulags í gærkvöldi var borin fram fyrirspurn um þróun núverandi landfyllinga, en enn og aftur getur bærinn ekki svarað einföldum spurningum um málið.Samkvæmt mælingum sem BBK hefur látið framkvæma hafa landfyllingar við Fossvog, Kópavogsmegin, stækkað um 15 ha frá árinu 1997 (9 ha á hafnarsvæði yst í voginum og 6 ha í bryggjuhverfi). Þar af hafa rúmir 13 hektarar bæst við frá árinu 2000 (7 ha á hafnarsvæði og 6 ha í bryggjuhverfi). Landfyllingar umfram 5 ha eru umhverfismatsskyldar. Þetta þýðir að: 1) Búið er að fylla 2 ha meira en gildandi aðalskipulag heimilar2) Búið er að fylla 7 ha meira en gildandi svæðisskipulag heimilar3) Landfyllingin er öll ólögleg því hún er stærri en 5 ha og ekkert umhverfismat hefur farið fram4) Kópavogur hefur ekki gefið sjálfum sér framkvæmdaleyfi vegna landfyllinga á Kársnesi. Það er ólöglegt.5) Skortur á framkvæmdaleyfi þýðir að ekki er hægt að kæra málið til Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingamála.
Leave a Reply