Leita:

Karsnes.is

Betri byggð á Kársnesi

Um okkur

Betri byggð á Kársnesi eru samtök sem hafa það að markmiði að standa vörð um lífsgæði íbúa í vesturbæ Kópavogs. Kveikjan að stofnun samtakanna eru tillögur Kópavogsbæjar að nýju framtíðarskipulagi vestast á Kársnesi. Hér getur þú aflað þér upplýsinga um málefnið, gerst félagi í samtökunum og látið skoðun þína í ljós. Taktu þátt.
Stöndum vörð um Kársnesið.

Um okkur

Forsagan 
Í desember 2006 kynnti Kópavogsbær framtíðarskipulag vestast á Kársnesi fyrir fullu húsi á fundi í Salnum.  Á annað hundrað manns sendi inn athugasemdir fyrir tilskilinn frest þann 1. febrúar 2007 og um vorið lagði bærinn fram endurskoðað rammaskipulag.  Mikill meirihluti þeirra sem gert höfðu athugasemdir töldu mjög takmarkað tillit tekið til athugsemdanna og fannst vanta farveg til að koma óánægju sinni á framfæri og til að hafa áhrif á skipulag Kársnessins.    

Athugasemdir íbúa
 
Athugasemdir íbúa beinast einkum að eftirfarandi: 
1. Stórskipahöfn – höfnin og tengd starfsemi hentar illa umhverfi og skipulagi Kársness
2. Atvinnusvæði á uppfyllingu – mannvirki tengd hafnarstarfseminni á gríðarstórri uppfyllingu eiga ekki samleið með núverandi íbúðabyggð og eru sóun á verðmætum sjávarlóðum.
3. Íbúafjölgun – of mikil íbúafjölgun veldur of miklu álagi á innviði hverfisins og háreistar byggingar falla illa að ásýnd hverfisins auk þess að skerða útsýni.
4. Umferðaraukning – flutningar tengdir höfninni og aukin umferð vegna íbúafjölgunar veldur of miklum umferðarþunga á Kársnesbraut og öðrum stoðbrautum hverfisins auk þess að hafa í för með sér mengun og slysahættu. 

Stofnun samtaka
Hópur áhugafólks ákvað í júní að stofna samtök um bætt skipulag á Kársnesi.  Stofnfundur samtakanna “Betri byggð á Kársnesi” var haldinn þann 20. júní 2007 í Kaffibúðinni, Hamraborg.  Til fundarins voru boðaðir þeir sem gert höfðu athugasemdir við rammaskipulagið.  Lög félagsins voru samþykkt og sjö manna stjórn kjörin. Hana skipa: Arna Harðardóttir, Auður Arna Eiríksdóttir, Bjarni Bergsson, Hanna Styrmisdóttir, Indriði Björnsson, Rebekka Rán Samper og Þórarinn Ævarsson. (varaformaður 


Tilgangur samtakanna
Tilgangur samtakanna er að bæta lífsgæði íbúa á Kársnesi.
Í upphafi setja samtökin sér eftirfarandi markmið:
1.    Að fá bæjaryfirvöld í Kópavogi til að falla frá áformum um stórskipahöfn og tengdar framkvæmdir á uppfyllingu.
2.    Að koma í veg fyrir stórfellda íbúafjölgun á Kársnesi, umfram það sem stoðkerfi hverfisins þola með góðu móti. 


Mótmælaborðar 
Íbúar á Kársnesbraut 11 setti upp mótmælaborða á lóð sinni um miðjan júní 2007sem strax vakti mikla eftirtekt, bæði íbúa og fjölmiðla.  Fljótlega fylgdu aðrir í kjölfarið og í lok sumars voru komnir upp um 200 borðar víðsvegar um hverfið með ýmsum áletrunum, s.s. “NEI TAKK! Enga höfn á Kársnes” og “18.000 bílar á dag! NEI TAKK!”.  


Atburðarás
 
 

Desember 2006: Kópavogsbær kynnti framtíðarskipulag vestast á Kársnesi fyrir fullu húsi á fundi í Salnum. Fjölmargir íbúar tóku til máls og lýstu andstöðu við hugmyndirnar.
Janúar-febrúar 2007: Á annað hundrað manns sendi inn athugasemdir til bæjarins.
Mars-apríl: Kópavogsbær lagði fram enduskoðað rammaskipulag
Maí-júní: Undirbúningur að stofnun samtaka hefst meðal þeirra sem fannst lítið tillit tekið til athugasemdanna.  Þessum íbúum fannst vanta farveg til að koma óánægju sinni á framfæri.
17. júní: Íbúar á Kársnesbraut 11 hengja upp mótmælaborða með áletruninni “NEI TAKK! Enga höfn á Kársnes” og vekja mikla athygli innan og utan hverfisins.
27. júní: Stofnfundur samtakanna “Betri byggð á Kársnesi” haldinn í Kaffibúðinni, Hamraborg með þátttöku þeirra sem gert höfðu athugasemdir við rammaskipulagið.  Lög félagsins samþykkt og sjö manna stjórn kjörin. Arna Harðardóttir kjörin formaður og Þórarinn Ævarsson kjörinn varaformaður á fyrsta fundi stjórnar samtakanna.

5. júlí: Vefsíðan www.karsnes.is fer í loftið

15. ágúst: Íbúafundur BBK haldinn fyrir troðfullum sal í Salnum. Mikil samstaða og stemning og ályktun með áskorun til Kópavogsbæjar samþykkt í lok fundar.

28. ágúst: Hverfahópar í Kópavogi álykta um skipulagsmál, m.a. á Kársnesi

3. september: Frestur til að skila athugasemdum vegna skipulagstillagna á hafnarsvæði rennur út. Um 1700 athugasemdir berast sem er met í sögu skipulagsmála í Kópavogi. 

8. nóvember: Kópavogsbær fellur frá auglýstum skipulagstillögum.

Apríl-júní 2008: Nýr sviðsstjóri skipulagsmála hittir stjórn BBK á 4 fundum til að kynna nýjar hugmyndir sínar að skipulagi á Kársnesi.  Viðræðum slitið að hálfu bæjarins 18. júní 2008.

8. júlí: Kópavogsbær heldur íbúafund um framtíðarskipulag á Kársnesi. Kynning sviðsstjóra en engar fyrirspurnir heimilaðar í lok hennar.  Tillögurnar fela í sér aukningu á íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði og umferð frá síðustu hugmyndum frá apríl 2007 þvert á vilja íbúa.

  1. No comments yet.

Leave a Reply