Leita:

Karsnes.is

Betri byggð á Kársnesi

Um okkur

Betri byggð á Kársnesi eru samtök sem hafa það að markmiði að standa vörð um lífsgæði íbúa í vesturbæ Kópavogs. Kveikjan að stofnun samtakanna eru tillögur Kópavogsbæjar að nýju framtíðarskipulagi vestast á Kársnesi. Hér getur þú aflað þér upplýsinga um málefnið, gerst félagi í samtökunum og látið skoðun þína í ljós. Taktu þátt.
Stöndum vörð um Kársnesið.

Hvað á ég að kjósa á laugardaginn?

Sennilega hefur fólk aldrei átt erfiðara með að gera upp hug sinn í kosningum en í þeim sveitarstjórnarkosningum sem framundan eru.
 
Fyrir okkur sem búum í Vesturbænum í Kópavogi skipta áherslur flokkanna hvað varðar skipulagsmálin gríðarlega miklu máli.  Sumir telja að við þurfum engar áhyggjur að hafa; að kreppan sjái til þess að ekkert verði byggt.  En svo er alls ekki.  Það eru ennþá uppi áform hjá núverandi meirihluta um stórfellda íbúafjölgun á Kársnesi sem mun draga stórlega úr lífsgæðum þeirra íbúa sem nú búa í hverfinu.  Auk þess er í burðarliðnum nýtt aðalskipulag fyrir bæinn sem gildir næstu 10 árin og mikilvægt að hafa áhrif á þá stefnumörkun sem þar fer fram. 

BBK sendi spurningar til þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum í Kópavogi.  Tilgangurinn er að auðvelda íbúum í Vesturbæ Kópavogs að kjósa með tilliti til áherslna flokkanna í skipulagsmálum. Við munum birta svörin á vefsíðunni á morgun, fimmtudag. Spurningarnar sem allar snerta skipulagsmál á Kársnesi hljóða svo:

Við óskum þess hér með að flokkurinn upplýsi samtökin um afstöðu sína varðandi skipulagsmál í vesturbæ Kópavogs með því að svara eftirfarandi spurningum: 

1.       Landnotkun vestast á Kársnesi

Núgildandi skipulag gerir ráð fyrir blandaðri íbúðabyggð og atvinnustarfsemi.

a)       Telji þið að þetta sé sú samsetning sem stefna beri að?

b)       Hver er skoðun ykkar á stærð og nýtingu landfyllingar á nesinu? 

2.       Íbúafjölgun Á Kársnesi búa nú 4.400 manns. Með þegar samþykktum og áætluðum skipulagsbreytingum stefnir í tvöföldun íbúa. Heildarfjöldi í hverfinu verður þá um 9.000 sem slagar hátt í íbúafjölda Garðarbæjar.

a)       Hversu mikinn íbúafjölda teljið þið að Kársnesið beri? b)       Kallar sá íbúafjöldi á breytingar á stoðkerfi hverfisins og þá hverjar? 

3.       Umhverfi, lífsgæði og náttúruvernd

a)       Á að friðlýsa strandlengju Kársness og ef svo er, hvenær ætti það að gerast?

b)       Er réttlætanlegt að skipulagsbreytingar valdi skerðingu lífsgæða íbúa í grónum hverfum (s.s. aukin loft- og hljóðmengun, aukin slysahætta o.s.frv) og ef svo er, hvaða lífsgæði og að hvað miklu leyti? c)       Ber að ykkar mati að fjölga svæðum fyrir útivist og afþreyingu á Kársnesi og ef svo er með hvaða hætti? 

4.       Aðkoma íbúa að skipulagsmálum

a)       Hvernig teljið þið aðkoma íbúa eigi að vera háttað í skipulagsmálum, s.s. í stefnumótun og ákvörðunartöku?

 b)       Hvaða reglur eiga að gilda um þéttingu í grónum hverfum í bænum?  

5.       Framtíðarsýn Hver er þín framtíðarsýn varðandi þróun byggðar á Kársnesi og hvaða þættir skipta þar mestu máli?

  1. No comments yet.

Leave a Reply