Leita:

Karsnes.is

Betri byggð á Kársnesi

Um okkur

Betri byggð á Kársnesi eru samtök sem hafa það að markmiði að standa vörð um lífsgæði íbúa í vesturbæ Kópavogs. Kveikjan að stofnun samtakanna eru tillögur Kópavogsbæjar að nýju framtíðarskipulagi vestast á Kársnesi. Hér getur þú aflað þér upplýsinga um málefnið, gerst félagi í samtökunum og látið skoðun þína í ljós. Taktu þátt.
Stöndum vörð um Kársnesið.

Vel heppnaður ársfundur

Ársfundur BBK var haldinn í kvöld í Muffin Bakery, Hamraborg.

Fundurinn var vel sóttur og líflegar umræður um málefni Kársnesins og skipulagsmál í bænum sköpuðust að loknum hefðbundnum ársfundarstörfum.

Í stjórn samtakanna voru kjörin: Arna Harðardóttir, Auður Arna Eiríksdóttir, Bjarni Bergsson, Helga Guðrún Jónasdóttir, Hugrún Sigurjónsdóttir, Indriði Björnsson og Þórarinn Ævarsson.  Helga og Hugrún eru nýjar í stjórn, en úr stjórn fóru Hanna Styrmisdóttir og Rebekka Rán Samper.

Hér má nálgast skýrslu stjórnar sem flutt var á fundinum.

  1. No comments yet.

Leave a Reply