Svæðisskipulag í auglýsingu - frestur til 20. janúar
Þrátt fyrir mikla andstöðu Kársnesinga og Reykvíkinga, m.a. á kynningarfundi í september sl., ákvað Kópavogsbær að auglýsa (sjá hér) þá svæðisskipulagstillögu sem kynnt var fyrir Kársnes í haust. Tillagan var auglýst í nóvember og frestur gefinn til 20. janúar til að senda inn athugasemdir. Enn og aftur tekst bænum að tímasetja skipulagstillögu fyrir Kársnesið á “hentugum” tíma og engu líkara en að “fengitími” sé hjá bæjarskipulaginu tvisvar á ári um jól og sumar, en eins og menn muna voru hugmyndirnar upphaflega settar fram korteri fyrir jól 2006, auglýstar 3. júlí 2007 og breyttar tillögur síðan kynntar á fundi 8. júlí 2008.
Betri byggð á Kársnesi mun senda inn athugasemdir við tillöguna og gera má ráð fyrir að fleiri muni gera slíkt hið sama, s.s. Reykjavíkurborg og íbúahópar í borginni. Í september sl. sendi BBK inn umsögn um tillöguna sem er að finna hér neðar á síðunni. Þar má sjá þau helstu atriði sem við gerum athugasemdir við, þ.e. landfyllingu, umferð, ónógar upplýsingar í umhverfisskýrslum og skort á samráði við íbúa og tillits til vilja þeirra. BBK mun ekki hvetja einstaka meðlimi sérstaklega til að senda inn athugasemdir þar sem eingöngu er um svæðisskipulagsbreytingu er að ræða sem fjallar um heildaráhrif tillagnanna á höfuðborgarsvæðið. Hins vegar er alltaf til gagns að sem flestir geri athugasemdir og ekki má gleyma niðurlagi auglýsingarinnar, en þar segir eins og alltaf í slíkum auglýsingum .”Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.” Allur er varinn góður! Að sjálfsögðu hvetjum við alla aðra höfuðborgarbúa að senda inn athugasemdir, enda er þetta eina tækifærið sem íbúar utan Kópavogs hafa til að tjá sig um tillöguna.
Reader's Comments
uzihybyjoxes…
Jeep Part Willys …
ubodukiha…
lyrics for bohemian rhapsody by queen …
Leave a Reply