Leita:

Karsnes.is

Betri byggð á Kársnesi

Um okkur

Betri byggð á Kársnesi eru samtök sem hafa það að markmiði að standa vörð um lífsgæði íbúa í vesturbæ Kópavogs. Kveikjan að stofnun samtakanna eru tillögur Kópavogsbæjar að nýju framtíðarskipulagi vestast á Kársnesi. Hér getur þú aflað þér upplýsinga um málefnið, gerst félagi í samtökunum og látið skoðun þína í ljós. Taktu þátt.
Stöndum vörð um Kársnesið.

Áskorun: Aukið umferðaröryggi á Borgarholtsbraut

Þann 29. október sl. var Smára Smárasyni skipulagsstjóra afhent áskorun þess efnis að umferðaröryggi við Borgarholtsbraut yrði bætt. Til lengri tíma hafa íbúar sem búsettir eru nálægt gatnamótum Borgarholts- og Urðarbrautar verið uggandi yfir vaxandi umferð og umferðarhraða við götuna.  Sér í lagi skapast mikil hætta  þegar akandi vegfarendur auka hraðann til að ná yfir á grænu ljósi við gatnamótin, eins og virðist afar algengt. Gegnum tíðina hafa orðið nokkur umferðarslys á vegarkaflanum, og við núverandi aðstæður má telja líklegt að slíkt eigi eftir að endurtaka sig, en um götuna fara m.a. daglega fjölmörg skólabörn á leið í skólasund í Sundlaug Kópavogs. Því var skorað á skipulagsyfirvöld Kópavogsbæjar að standa fyrir viðeigandi aðgerðum s.s. fjölgun hraðahindrana og frekari takmörkun hámarkshraða, til að draga úr umferðarhraða hið snarasta. Fjölmargir íbúar við Borgarholtsbraut skrifuðu undir áskorunina.
Ef fleiri vilja leggja málefninu lið er fólk hvatt til að senda tölvupóst til skipulagsstjóra, Smára Smárasonar, á smaris@kopavogur.is

Áskorunina má sjá hér.

Post Meta

Reader's Comments

  1. tomas |

    Sendið endilega þessa ítrekun á viðeigandi aðila:
    smaris@kopavogur.is, steingr@kopavogur.is, joningi@kopavogur.is

    Ég ítreka hér með áskorun þá er ég skrifaði undir í október sl. um aðgerðir til aukins umferðaröryggis við Borgarholtsbraut. Nýleg lækkun hámarkshraða úr 50 í 30 km/klst var skref í rétta átt, en því miður hunsa alltof margir bílstjórar þá breytingu. Því tel ég nauðsynlegt að bæjaryfirvöld aðhafist frekar í málinu, þá helst með því að koma fyrir hraðahindrunum beggja vegna gatnamótanna við Urðarbraut.

Leave a Reply