Leita:

Karsnes.is

Betri byggð á Kársnesi

Um okkur

Betri byggð á Kársnesi eru samtök sem hafa það að markmiði að standa vörð um lífsgæði íbúa í vesturbæ Kópavogs. Kveikjan að stofnun samtakanna eru tillögur Kópavogsbæjar að nýju framtíðarskipulagi vestast á Kársnesi. Hér getur þú aflað þér upplýsinga um málefnið, gerst félagi í samtökunum og látið skoðun þína í ljós. Taktu þátt.
Stöndum vörð um Kársnesið.

Ólöglegar landfyllingar

BBK hefur ítrekað lýst þeirri skoðun sinni að þær landfyllingar sem hafa farið fram á Kársnesi undanfarin ár séu ólöglegar.  Á kynningarfundi vegna svæðisskipulags í gærkvöldi var borin fram fyrirspurn um þróun núverandi landfyllinga, en enn og aftur getur bærinn ekki svarað einföldum spurningum um málið. Samkvæmt mælingum sem BBK hefur látið framkvæma hafa landfyllingar við Fossvog, Kópavogsmegin, stækkað um 15 ha frá árinu 1997 (9 ha á hafnarsvæði yst í voginum og 6 ha í bryggjuhverfi). Þar af hafa rúmir 13 hektarar bæst við frá árinu 2000 (7 ha á hafnarsvæði og 6 ha í bryggjuhverfi).  Landfyllingar umfram 5 ha eru umhverfismatsskyldar. Þetta þýðir að:
1)      Búið er að fylla 2 ha meira en gildandi aðalskipulag heimilar
2)      Búið er að fylla 7 ha meira en gildandi svæðisskipulag heimilar
3)      Landfyllingin er öll ólögleg því hún er stærri en 5 ha og ekkert umhverfismat hefur farið fram
4)      Kópavogur hefur ekki gefið sjálfum sér framkvæmdaleyfi vegna landfyllinga á Kársnesi.  Það er ólöglegt.
5)      Skortur á framkvæmdaleyfi þýðir að ekki er hægt að kæra málið til Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingamála. 

Í þessu máli hefur Kópavogsbær kosið að brjóta lög með opin augu og kosið að hunsa margítrekaðar athugasemdir BBK þar að lútandi.

Post Meta

  1. No comments yet.

Leave a Reply