Leita:

Karsnes.is

Betri byggð á Kársnesi

Um okkur

Betri byggð á Kársnesi eru samtök sem hafa það að markmiði að standa vörð um lífsgæði íbúa í vesturbæ Kópavogs. Kveikjan að stofnun samtakanna eru tillögur Kópavogsbæjar að nýju framtíðarskipulagi vestast á Kársnesi. Hér getur þú aflað þér upplýsinga um málefnið, gerst félagi í samtökunum og látið skoðun þína í ljós. Taktu þátt.
Stöndum vörð um Kársnesið.

Reykjavíkurborg lýsir verulegum áhyggjum af landfyllingu

Umhverfis- og samgönguráð Reykjavíkur hefur lýst verulegum áhyggjum af umhverfisáhrifum fyrirhugaðra skipulagsbreytinga á Kársnesi. Ráðið harmar að framkvæmdir séu hafnar þótt lögformlegt ferli sé varla hafið. Í umsögn Umhverfis- og samgöngusviðs borgarinnar kemur m.a. fram að landfyllingin geti minnkað útivistargildi svæðisins, valdið hávaða- og svifryksmengun og haft áhrif á lífríki og sjávarstrauma.  Sú krafa er gerð að rannsóknir á áhrifum sjávarstrauma og vistkerfis fari fram strax, ekki sé ásættanlegt að það verði kannað á seinni stigum.

Bókun ráðsins má nálgast hér.

Hér má lesa umsögn Umhverfis- og samgöngusviðs um málið.

Post Meta

  1. No comments yet.

Leave a Reply