Leita:

Karsnes.is

Betri byggð á Kársnesi

Um okkur

Betri byggð á Kársnesi eru samtök sem hafa það að markmiði að standa vörð um lífsgæði íbúa í vesturbæ Kópavogs. Kveikjan að stofnun samtakanna eru tillögur Kópavogsbæjar að nýju framtíðarskipulagi vestast á Kársnesi. Hér getur þú aflað þér upplýsinga um málefnið, gerst félagi í samtökunum og látið skoðun þína í ljós. Taktu þátt.
Stöndum vörð um Kársnesið.

Ályktun íbúasamtaka í Reykjavík

Íbúasamtökin Reykjavíkurmegin við Fossvoginn hafa sent borginni eftirfarandi áyktun vegna:

“Stjórn Íbúasamtaka 3. hverfis – Hlíðar, Holt og Norðurmýri  hvetja borgaryfirvöld til að tryggja að fram fari heilstætt Umhverfismat vegna fyrirhugaðrar landfyllingar sem Kópavogur hyggst ráðast í út frá Kársnesi. Fyrirhuguð framkvæmd er ógnun við lífríki Fossvogsins og gengur gegn Náttúruverndaráætlun um friðlýsingu Skerjafjarðar. Auk þess eru algjörlega ókönnuð þau áhrif sem framkvæmdin mun hafa á lífríkið í voginum og hvaða áhrif aukinn íbúafjöldi á Kársnesi mun hafa á fjölda bifreiða sem fara munu Kringlumýrarbraut, Bústaðaveg og Miklubraut í gegnum Hlíðarnar. Eins og borgaryfirvöldum er kunnugt um er gegnumstreymisumferð og mengun af hennar völdum þegar stórt vandamál í Hlíðum.”

Post Meta

  1. No comments yet.

Leave a Reply