Mættum við þá heldur biðja um dönsku trúðana í sjónvarpinu!
Það var mál margra eftir kynningarfund bæjarins í gærkvöldi að embættismenn hefðu mætt illa undirbúnir og athygli vakti að enginn pólitískur fulltrúi meirihlutans var mættur til að mæla fyrir breytingunum.
Ónefndur íbúi í Austurbæ Kópavogs hafði þetta að segja að fundinum loknum: “Spurningarnar sýndu bæði tilgangsleysi og umboðsleysi þeirra sem stóðu að fundinum og það er að verða svolítið þreytt að mæta á fundi þar sem Birgir er grillaður, verkfræðingurinn sýnir ekkert nema hroka, aðrir embættismenn eru eins og hræddar strengjabrúður og svo kemur yfirleppurinn, formaður skipulagsnefndar og hljómar vitlausari en nokkur í pólitík hefur leyfi til að vera.
Allar umræður og allir fundir í Kópavogi eru tilgangslausar nema einvaldurinn sé til svara um hvað hann vill, hvers vegna og hvað þurfi til að hann taki líka til skoðunar hagsmuni og vilja þeirra sem búa í bænum.
Á meðan hann sendir aðra til að vinna skítverkin fyrir sig er sennilega betra að vera heima og horfa á dönsku trúðana í sjónvarpinu, þeir eru þó a.m.k. fyndnir og hafa sjálfa sig að fíflum en ekki okkur.”
Leave a Reply