Leita:

Karsnes.is

Betri byggð á Kársnesi

Um okkur

Betri byggð á Kársnesi eru samtök sem hafa það að markmiði að standa vörð um lífsgæði íbúa í vesturbæ Kópavogs. Kveikjan að stofnun samtakanna eru tillögur Kópavogsbæjar að nýju framtíðarskipulagi vestast á Kársnesi. Hér getur þú aflað þér upplýsinga um málefnið, gerst félagi í samtökunum og látið skoðun þína í ljós. Taktu þátt.
Stöndum vörð um Kársnesið.

Taktu fimmtudagskvöldið frá

Mikilvægur kynningarfundur fyrir íbúa 

Kópavogsbær auglýsti í Fréttablaðinu í dag kynningarfund um breytt skipulag á Kársnesi. Markmið fundarins er að íbúar á höfuðborgarsvæðinu geti kynnt sér tillögu bæjarins um 1.000 nýjar íbúðir og 13 ha landfyllingar á Kársnesi.  Áhrifin verða stórfelld íbúafjölgun og gríðarleg umferðaraukning eins og áður hefur komið fram.  

Fram hefur komið að mikil hætta er á að nýjar landfyllingar geti valdið lífríki Fossvogsins óafturkræfum skaða, en slíkt umhversslys yrði mikið áfall því Fossvogurinn er eins og allir vita ein helsta náttúru- og útivistarperla höfuðborgarsvæðisins. 

Reykjavíkurborg hefur gagnrýnt hugmyndir um landfyllingu harðlega eins og sjá má á þessari frétt á mbl.is í kvöld.

Auglýsingin sem birtist í Fréttablaðinu í dag var lítið áberandi og villandi og er engu líkara en að Kópavogsbær sé að reyna að halda fundinn í kyrrþey.


ÞAÐ ER MJÖG MIKILVÆGT AÐ SEM FLESTIR MÆTI – KOMUM FOSSVOGINUM TIL BJARGAR.


Fundarstaður: Kársnesskóli við Vallargerði
Fundartími: Fimmtudagur 25. september kl. 20

Post Meta

  1. No comments yet.

Leave a Reply