Okkur hafa borist svör við spurningum sem BBK sendi stjórmálaflokkunum í tilefni sveitarstjórnarkosninganna. Allir flokkar hafa svarað, ef frá er talinn Framsóknarflokkurinn. Af svörunum að dæma munu verða verulegar breytingar til batnaðar á aðkomu íbúa að skipulagsbreytingum á næsta kjörtímabili. Allir flokkar vilja tryggja aukna aðkomu íbúa, en með ólíkum hætti þó. Hér er samantekt á svörum flokkanna.
Stjórn BBK hvetur íbúa á Kársnesi að setja skipulagsmálin á oddinn við atkvæðagreiðslu á laugardaginn.
27.May.10
Almennt
Read more
Comments (0)
Sennilega hefur fólk aldrei átt erfiðara með að gera upp hug sinn í kosningum en í þeim sveitarstjórnarkosningum sem framundan eru.
Fyrir okkur sem búum í Vesturbænum í Kópavogi skipta áherslur flokkanna hvað varðar skipulagsmálin gríðarlega miklu máli. Sumir telja að við þurfum engar áhyggjur að hafa; að kreppan sjái til þess að ekkert verði byggt. En svo er alls ekki. Það eru ennþá uppi áform hjá núverandi meirihluta um stórfellda íbúafjölgun á Kársnesi sem mun draga stórlega úr lífsgæðum þeirra íbúa sem nú búa í hverfinu. Auk þess er í burðarliðnum nýtt aðalskipulag fyrir bæinn sem gildir næstu 10 árin og mikilvægt að hafa áhrif á þá stefnumörkun sem þar fer fram.
BBK sendi spurningar til þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum í Kópavogi. Tilgangurinn er að auðvelda íbúum í Vesturbæ Kópavogs að kjósa með tilliti til áherslna flokkanna í skipulagsmálum. Við munum birta svörin á vefsíðunni á morgun, fimmtudag. Spurningarnar sem allar snerta skipulagsmál á Kársnesi hljóða svo:
Við óskum þess hér með að flokkurinn upplýsi samtökin um afstöðu sína varðandi skipulagsmál í vesturbæ Kópavogs með því að svara eftirfarandi spurningum:
1. Landnotkun vestast á Kársnesi
Núgildandi skipulag gerir ráð fyrir blandaðri íbúðabyggð og atvinnustarfsemi.
a) Telji þið að þetta sé sú samsetning sem stefna beri að?
b) Hver er skoðun ykkar á stærð og nýtingu landfyllingar á nesinu?
2. Íbúafjölgun Á Kársnesi búa nú 4.400 manns. Með þegar samþykktum og áætluðum skipulagsbreytingum stefnir í tvöföldun íbúa. Heildarfjöldi í hverfinu verður þá um 9.000 sem slagar hátt í íbúafjölda Garðarbæjar.
a) Hversu mikinn íbúafjölda teljið þið að Kársnesið beri? b) Kallar sá íbúafjöldi á breytingar á stoðkerfi hverfisins og þá hverjar?
3. Umhverfi, lífsgæði og náttúruvernd
a) Á að friðlýsa strandlengju Kársness og ef svo er, hvenær ætti það að gerast?
b) Er réttlætanlegt að skipulagsbreytingar valdi skerðingu lífsgæða íbúa í grónum hverfum (s.s. aukin loft- og hljóðmengun, aukin slysahætta o.s.frv) og ef svo er, hvaða lífsgæði og að hvað miklu leyti? c) Ber að ykkar mati að fjölga svæðum fyrir útivist og afþreyingu á Kársnesi og ef svo er með hvaða hætti?
4. Aðkoma íbúa að skipulagsmálum
a) Hvernig teljið þið aðkoma íbúa eigi að vera háttað í skipulagsmálum, s.s. í stefnumótun og ákvörðunartöku?
b) Hvaða reglur eiga að gilda um þéttingu í grónum hverfum í bænum?
5. Framtíðarsýn Hver er þín framtíðarsýn varðandi þróun byggðar á Kársnesi og hvaða þættir skipta þar mestu máli?
26.May.10
Almennt
Read more
Comments (0)
Ársfundur BBK var haldinn í kvöld í Muffin Bakery, Hamraborg.
Fundurinn var vel sóttur og líflegar umræður um málefni Kársnesins og skipulagsmál í bænum sköpuðust að loknum hefðbundnum ársfundarstörfum.
Í stjórn samtakanna voru kjörin: Arna Harðardóttir, Auður Arna Eiríksdóttir, Bjarni Bergsson, Helga Guðrún Jónasdóttir, Hugrún Sigurjónsdóttir, Indriði Björnsson og Þórarinn Ævarsson. Helga og Hugrún eru nýjar í stjórn, en úr stjórn fóru Hanna Styrmisdóttir og Rebekka Rán Samper.
Hér má nálgast skýrslu stjórnar sem flutt var á fundinum.
06.May.10
Almennt
Read more
Comments (0)
Ársfundur samtakanna Betri byggð á Kársnesi verður haldinn fimmtudaginn 6. maí n.k. í Muffin Bakery, Hamraborg 3. Fundurinn hefst kl. 20.
Dagskrá skv. lögum félagsins:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar
3. Reikningar félagsins
4. Kosning stjórnar
5. Kosning endurskoðenda
6. Önnur mál
Stjórnin
05.May.10
Almennt
Read more
Comments (0)
BBK hefur gert athugasemdir við auglýsta svæðisskipulagstillögu fyrir vestanvert Kársnes. Bréfið má sjá hér.
Meðal annarra hagsmunaaðila sem sent hafa inn athugasemdir eru íbúasamtök 3. hverfis í Reykjavík (Hlíðar, Holt og Norðurmýri). Þeirra athugasemdir má sjá hér.
19.Jan.09
Almennt
Read more
Comments (0)
Þrátt fyrir mikla andstöðu Kársnesinga og Reykvíkinga, m.a. á kynningarfundi í september sl., ákvað Kópavogsbær að auglýsa (sjá hér) þá svæðisskipulagstillögu sem kynnt var fyrir Kársnes í haust. Tillagan var auglýst í nóvember og frestur gefinn til 20. janúar til að senda inn athugasemdir. Enn og aftur tekst bænum að tímasetja skipulagstillögu fyrir Kársnesið á “hentugum” tíma og engu líkara en að “fengitími” sé hjá bæjarskipulaginu tvisvar á ári um jól og sumar, en eins og menn muna voru hugmyndirnar upphaflega settar fram korteri fyrir jól 2006, auglýstar 3. júlí 2007 og breyttar tillögur síðan kynntar á fundi 8. júlí 2008.
Betri byggð á Kársnesi mun senda inn athugasemdir við tillöguna og gera má ráð fyrir að fleiri muni gera slíkt hið sama, s.s. Reykjavíkurborg og íbúahópar í borginni. Í september sl. sendi BBK inn umsögn um tillöguna sem er að finna hér neðar á síðunni. Þar má sjá þau helstu atriði sem við gerum athugasemdir við, þ.e. landfyllingu, umferð, ónógar upplýsingar í umhverfisskýrslum og skort á samráði við íbúa og tillits til vilja þeirra. BBK mun ekki hvetja einstaka meðlimi sérstaklega til að senda inn athugasemdir þar sem eingöngu er um svæðisskipulagsbreytingu er að ræða sem fjallar um heildaráhrif tillagnanna á höfuðborgarsvæðið. Hins vegar er alltaf til gagns að sem flestir geri athugasemdir og ekki má gleyma niðurlagi auglýsingarinnar, en þar segir eins og alltaf í slíkum auglýsingum .”Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.” Allur er varinn góður! Að sjálfsögðu hvetjum við alla aðra höfuðborgarbúa að senda inn athugasemdir, enda er þetta eina tækifærið sem íbúar utan Kópavogs hafa til að tjá sig um tillöguna.
15.Jan.09
Almennt
Read more
Comments (2)
Fyrir bæjarráðsfund í dag var lagt fram bréf BBK með áskorun fundarins sl. fimmtudag sem borin var fram af Sigurði Flosasyni og samþykkt einróma.
Áskorunin hljómar svo:Fundur haldinn 25. sept. 2008 í Kársnesskóla við Vallargerði skorar á bæjaryfirvöld:
- Í fyrsta lagi að stöðva nú þegar allar frekari landfyllingar á Kársnesi.
- Og í öðru lagi að þar til samkomulag hefur náðst um skipulag byggðar á Kársnesi verði ekki samþykkt að byggja hærri hús þar en tveggja hæða.
02.Oct.08
Almennt
Read more
Comment (1)
Þann 29. október sl. var Smára Smárasyni skipulagsstjóra afhent áskorun þess efnis að umferðaröryggi við Borgarholtsbraut yrði bætt. Til lengri tíma hafa íbúar sem búsettir eru nálægt gatnamótum Borgarholts- og Urðarbrautar verið uggandi yfir vaxandi umferð og umferðarhraða við götuna. Sér í lagi skapast mikil hætta þegar akandi vegfarendur auka hraðann til að ná yfir á grænu ljósi við gatnamótin, eins og virðist afar algengt. Gegnum tíðina hafa orðið nokkur umferðarslys á vegarkaflanum, og við núverandi aðstæður má telja líklegt að slíkt eigi eftir að endurtaka sig, en um götuna fara m.a. daglega fjölmörg skólabörn á leið í skólasund í Sundlaug Kópavogs. Því var skorað á skipulagsyfirvöld Kópavogsbæjar að standa fyrir viðeigandi aðgerðum s.s. fjölgun hraðahindrana og frekari takmörkun hámarkshraða, til að draga úr umferðarhraða hið snarasta. Fjölmargir íbúar við Borgarholtsbraut skrifuðu undir áskorunina.
Ef fleiri vilja leggja málefninu lið er fólk hvatt til að senda tölvupóst til skipulagsstjóra, Smára Smárasonar, á smaris@kopavogur.is
Áskorunina má sjá hér.
30.Sep.08
Almennt
Read more
Comment (1)
BBK hefur ítrekað lýst þeirri skoðun sinni að þær landfyllingar sem hafa farið fram á Kársnesi undanfarin ár séu ólöglegar. Á kynningarfundi vegna svæðisskipulags í gærkvöldi var borin fram fyrirspurn um þróun núverandi landfyllinga, en enn og aftur getur bærinn ekki svarað einföldum spurningum um málið. Samkvæmt mælingum sem BBK hefur látið framkvæma hafa landfyllingar við Fossvog, Kópavogsmegin, stækkað um 15 ha frá árinu 1997 (9 ha á hafnarsvæði yst í voginum og 6 ha í bryggjuhverfi). Þar af hafa rúmir 13 hektarar bæst við frá árinu 2000 (7 ha á hafnarsvæði og 6 ha í bryggjuhverfi). Landfyllingar umfram 5 ha eru umhverfismatsskyldar. Þetta þýðir að:
1) Búið er að fylla 2 ha meira en gildandi aðalskipulag heimilar
2) Búið er að fylla 7 ha meira en gildandi svæðisskipulag heimilar
3) Landfyllingin er öll ólögleg því hún er stærri en 5 ha og ekkert umhverfismat hefur farið fram
4) Kópavogur hefur ekki gefið sjálfum sér framkvæmdaleyfi vegna landfyllinga á Kársnesi. Það er ólöglegt.
5) Skortur á framkvæmdaleyfi þýðir að ekki er hægt að kæra málið til Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingamála.
Í þessu máli hefur Kópavogsbær kosið að brjóta lög með opin augu og kosið að hunsa margítrekaðar athugasemdir BBK þar að lútandi.
26.Sep.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Það var mál margra eftir kynningarfund bæjarins í gærkvöldi að embættismenn hefðu mætt illa undirbúnir og athygli vakti að enginn pólitískur fulltrúi meirihlutans var mættur til að mæla fyrir breytingunum.
Ónefndur íbúi í Austurbæ Kópavogs hafði þetta að segja að fundinum loknum: “Spurningarnar sýndu bæði tilgangsleysi og umboðsleysi þeirra sem stóðu að fundinum og það er að verða svolítið þreytt að mæta á fundi þar sem Birgir er grillaður, verkfræðingurinn sýnir ekkert nema hroka, aðrir embættismenn eru eins og hræddar strengjabrúður og svo kemur yfirleppurinn, formaður skipulagsnefndar og hljómar vitlausari en nokkur í pólitík hefur leyfi til að vera.
Allar umræður og allir fundir í Kópavogi eru tilgangslausar nema einvaldurinn sé til svara um hvað hann vill, hvers vegna og hvað þurfi til að hann taki líka til skoðunar hagsmuni og vilja þeirra sem búa í bænum.
Á meðan hann sendir aðra til að vinna skítverkin fyrir sig er sennilega betra að vera heima og horfa á dönsku trúðana í sjónvarpinu, þeir eru þó a.m.k. fyndnir og hafa sjálfa sig að fíflum en ekki okkur.”
26.Sep.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Húsfyllir var á kynningarfundi Kópavogsbæjar í gær um breytt svæðisskipulag. Eftir hálftíma kynningu Birgis Sigurðssonar komust hófust fyrirspurnir sem stóðu í einn og hálfan tíma.
Mikil óánægja kom fram á fundinum með fyrirhugaðar landfyllingar og þrátt fyrir að ítrekað væri krafist um rökstuðning fyrir framkvæmdinni var fátt um svör. Íbúar sögðust þreyttir á endalausri fundarsetu vegna málsins, ekkert væri og að ekki væri hlustað á þá.
Sigurður Flosason bar fram ályktun sem fundurinn samþykkti með handaruppréttingu allra þeirra sem í salnum voru og uppskar lófatak fyrir. Tillaga Sigurðar hljóðar svo:
1) Engar frekari landfyllingar fari fram á Kársnesi
2) Hæð nýrra húsa á vestanverðu Kársnesi verði ekki meiri en 1-2 hæðir
26.Sep.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Íbúasamtökin Reykjavíkurmegin við Fossvoginn hafa sent borginni eftirfarandi áyktun vegna:
“Stjórn Íbúasamtaka 3. hverfis – Hlíðar, Holt og Norðurmýri hvetja borgaryfirvöld til að tryggja að fram fari heilstætt Umhverfismat vegna fyrirhugaðrar landfyllingar sem Kópavogur hyggst ráðast í út frá Kársnesi. Fyrirhuguð framkvæmd er ógnun við lífríki Fossvogsins og gengur gegn Náttúruverndaráætlun um friðlýsingu Skerjafjarðar. Auk þess eru algjörlega ókönnuð þau áhrif sem framkvæmdin mun hafa á lífríkið í voginum og hvaða áhrif aukinn íbúafjöldi á Kársnesi mun hafa á fjölda bifreiða sem fara munu Kringlumýrarbraut, Bústaðaveg og Miklubraut í gegnum Hlíðarnar. Eins og borgaryfirvöldum er kunnugt um er gegnumstreymisumferð og mengun af hennar völdum þegar stórt vandamál í Hlíðum.”
24.Sep.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Umhverfis- og samgönguráð Reykjavíkur hefur lýst verulegum áhyggjum af umhverfisáhrifum fyrirhugaðra skipulagsbreytinga á Kársnesi. Ráðið harmar að framkvæmdir séu hafnar þótt lögformlegt ferli sé varla hafið. Í umsögn Umhverfis- og samgöngusviðs borgarinnar kemur m.a. fram að landfyllingin geti minnkað útivistargildi svæðisins, valdið hávaða- og svifryksmengun og haft áhrif á lífríki og sjávarstrauma. Sú krafa er gerð að rannsóknir á áhrifum sjávarstrauma og vistkerfis fari fram strax, ekki sé ásættanlegt að það verði kannað á seinni stigum.
Bókun ráðsins má nálgast hér.
Hér má lesa umsögn Umhverfis- og samgöngusviðs um málið.
24.Sep.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Mikilvægur kynningarfundur fyrir íbúa
Kópavogsbær auglýsti í Fréttablaðinu í dag kynningarfund um breytt skipulag á Kársnesi. Markmið fundarins er að íbúar á höfuðborgarsvæðinu geti kynnt sér tillögu bæjarins um 1.000 nýjar íbúðir og 13 ha landfyllingar á Kársnesi. Áhrifin verða stórfelld íbúafjölgun og gríðarleg umferðaraukning eins og áður hefur komið fram.
Fram hefur komið að mikil hætta er á að nýjar landfyllingar geti valdið lífríki Fossvogsins óafturkræfum skaða, en slíkt umhversslys yrði mikið áfall því Fossvogurinn er eins og allir vita ein helsta náttúru- og útivistarperla höfuðborgarsvæðisins.
Reykjavíkurborg hefur gagnrýnt hugmyndir um landfyllingu harðlega eins og sjá má á þessari frétt á mbl.is í kvöld.
Auglýsingin sem birtist í Fréttablaðinu í dag var lítið áberandi og villandi og er engu líkara en að Kópavogsbær sé að reyna að halda fundinn í kyrrþey.
ÞAÐ ER MJÖG MIKILVÆGT AÐ SEM FLESTIR MÆTI – KOMUM FOSSVOGINUM TIL BJARGAR.
Fundarstaður: Kársnesskóli við Vallargerði
Fundartími: Fimmtudagur 25. september kl. 20
23.Sep.08
Almennt
Read more
Comments (0)
BBK hefur sent samvinnunefnd um svæðisskipulag á höfuðborgarsvæðinu athugasemdir vegna fyrirhugaðra breytinga á skipulagi fyrir Kársnes.
Málið snertir alla höfuðborgarbúa þar sem til stendur að bæta 13 ha landfyllingu út í Fossvoginn án þess að fyrir liggi athuganir á áhrifum á lífríki vogarins.
Athugasemdirnar má sjá hér.
23.Sep.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Samtökin BBK gagnrýna harðlega hvernig Kópavogsbær hefur staðið að auglýsingu á kynningarfundi um breytt svæðisskipulag. 1) Fundurinn er auglýstur með 2ja daga fyrirvara
2) Hvergi er í auglýsingunni minnst á að til standi að bæta 13 ha landfyllingu útí Fossvoginn, heldur einungis talað um 1 ha af óbyggðu svæði.
Í besta falli er þarna um mistök að ræða, en af fenginni reynslu er þetta líklega ekki tilviljun.
BBK hefur sent Samvinnunefnd, Skipulagsstofnun og Kópavogsbæ formlega kvörtun og krefst þess að hætt verði við fundinn og hann auglýstur aftur, bæði tímanlega og skilmerkilega.
23.Sep.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Skipulagsstjóri Kópavogs hefur leitað eftir umsögn Betri byggðar á Kársnesi vegna fyrirhugaðrar auglýsingar á breyttu aðal- og svæðisskipulagi fyrir vestanvert Kársnes. Helstu efnisatriði umsagnarinnar eru landfyllingar, umferðaraukning og samráð. Umferðarkaflinn er umfangsmestur, enda nauðsynlegt að nýta þetta tækifæri til að koma á framfæri við bæinn helstu áhyggjuefnum íbúa í tengslum við umferð og sú umferðarskýrsla sem lögð hefur verið fram er ekki ásættanleg. Umsögnina má nálgast hér.
22.Sep.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Í dag birtist stórskemmtileg grein eftir Indriði Björnsson í Morgunblaðinu. Hér ræður kaldhæðnin ríkjum og lýsingarnar á upplifun hins “sauðheimska” Kársnesbúa eru hreint út sagt óborganlegar. Töfrabrögð, leikur að tölum og ófrjósamir háskólastúdentar eru meðal þess sem Indriði gerir að umtalsefni. Greinina má nálgast hér.
21.Sep.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Þórarinn Ævarsson gerir makalausan málflutning Gunnars Birgissonar í Morgunblaðinu fyrr í vikunni að umtalsefni í grein í blaðinu í dag þar sem hann m.a. gagnrýnir framkomu bæjarins í garð íbúa. Varðandi lausnir á umferðarvanda á Kársnesbraut segir Þórarinn m.a. “Bæjarstjórinn sem digurbarkalega hélt því fram fyrir ári að lítið mál væri að koma Kársnesbraut í stokk hefur nú skipt um skoðun og ætlar sér nokkra metra inn á aðliggjandi lóðir, svo hægt sé að koma húsagötu fyrir í þrengslunum. Íbúum þykir þetta algerlega óviðunandi lausn og er því til lítils að mæta á samráðsfundi til að ræða útfærslur á aðgerð sem engin sátt verður um.” Grein Þórarins má nálgast hér.
13.Sep.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Sífellt fleiri finna sig knúna til að tjá sig opinberlega um skipulag á Kársnesi. Í Morgunblaðinu í dag birtist mjög athyglisverð grein eftir þrjá íbúa á Kársnesbraut, þau Freystein Sigurðsson, Ingibjörgu Sveinsdóttur og Ragnhildi Freysteinsdóttur. Þau benda á að við þeim umferðarvanda sem Kópavogsbær er að skipuleggja á Kársnesi séu einungis tvær lausnir: “auka umferðargetu gatnakerfis bæjarsins, sem í rauninni kallar á nýjar vegalagnir, en ekki er sjáanlegt að rými sé fyrir þær, eða að draga eins og hægt er úr umferðarþunga frá fyrirhuguðu byggingasvæði”. Þremenningarnir leggja í greininni til ýmsar áhugaverðar lausnir til að draga úr umferðarþunga. Greinina má lesa hér.
12.Sep.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Í dag voru kynntar mjög áhugaverðar niðurstöður Capacent um gildismat, en þar kemur m.a. fram að Íslendingar leggi mikla áherslu á á fjölskylduna, mun meiri en sést hafi í sambærilegum könnunum í öðrum löndum. Könnunin sýnir að þau hugtök sem Íslendingar telja að lýsi íslensku samfélagi í dag eru efnishyggja, skammsýni, óvissa um framtíðina og spilling. Óskasamfélag Íslendinga einkennist hins vegar af ábyrgðartilfinningu, fjölskyldugildum, fjárhagslegu öryggi og bjartsýni. Það er fróðlegt að skoða deilur um skipulagsmál í Kópavogi í þessu ljósi. Hér hafa verið stofnuð nokkur íbúasamtök á undanförnum árum til að sporna gegn gríðarlegri þéttingu á grónum íbúðasvæðum. Íbúar hafa gagnrýnt að bæjaryfirvöld hlusti ekki nægjanlega á þarfir íbúa og taki ekki nægt tillit til þess að í nútímasamfélagi vill fólk búa í öruggu og fjölskylduvænu umhverfi þar sem ekki þarf að hafa áhyggjur af umferðarvandamálum, slysahættu og mengun. Djúp gjá hefur myndast milli íbúanna og bæjaryfirvalda. Íbúar saka bæjaryfirvöld um að skella skollaeyrum við óánægjuröddum íbúanna og um að hafa það eitt að markmiði að byggja nógu mikið, nógu hátt og nógu þétt. Könnun Capacent leiðir hugann að því hvort skýringanna á þessum ólíku áherslum sé kannski að leita í ólíku gildismati. Á meðan framganga bæjaryfirvalda einkennist af efnishyggju og skammsýni vilja íbúarnir sjá ráðamenn bæjarins ganga til verks af ábyrðartilfinningu með fjölskyldugildi að leiðarljósi. Það er ólíklegt að gildismat þeirra sem búa á Kársnesi eða annars staðar í Kópavogi sé mikið frábrugðið gildismati annarra Íslendinga. Könnun Capacent ætti því að vera hvalreki á fjörur bæjarfulltrúa og embættismanna Kópavogsbæjar - nú ætti enginn að þurfa að velkjast í vafa um það lengur hvað það er sem almenningur vill.
11.Sep.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Grein Halldórs Jónssonar eins af trúnaðarmönnum Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi er mjög athyglisverð lesning og hefur kallað fram sterk viðbrögð íbúa á Kársnesi. (Greinina má sjá hér). Í pistlinum lýsir Halldór mjög eindregnum skoðunum sínum á skipulagsmálum á Kársnesi og framgöngu íbúa sem hann kýs að kalla fasista.
Ónefndur meðlimur BBK lét þessi orð falla að afloknum lestrinum:” Algjör snilld! Það þarf að stoppa manninn upp og senda á Þjóðminjasafnið”. Aðrir fundu hjá sér þörf til að svara Halldóri, þar á meðal Héðinn Sveinbjörnsson sem segir í frábærri grein í Morgunblaðinu í dag “við viljum svo sannarlega að góður bær verði enn betri. Ef við þurfum að vera umverfisfasistar til að ná þeim markmiðum; já þá er ég umhverfisfasisti!” Grein Héðins má lesa hér.
09.Sep.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Í dag birtist grein í Morgunblaðinu eftir Hugrúnu Sigurjónsdóttur, íbúa á Kársnesbraut. Hugrún er, rétt eins og yfirgnæfandi meirihluta íbúa við fyrirhugaða á húsagötu, þeirrar skoðunar að sé bæjaryfirvöldum alvara að keyra fyrirhugaða íbúafjölgun í gegn, sé eina nothæafa lausnin á umverðarvanda Kársnesbrautar að setja götuna í stokk.
Vert er að rifja upp að s.l. haust sagði Gunnar Birgisson að til stæði að setja götuna í stokk. Það kom þ.a.l. eins og þruma úr heiðskýru lofti þegar fullmótuð hugmynd að húsagötu var dregin upp úr skjóðu skipulagsins.
Grein Hugrúnar má lesa hér.
27.Aug.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Í grein í Morgunblaðinu í dag fjallar Arna Harðardóttir, formaður BBK, um þróun mála í sumar og greinir m.a. frá ósannsögli Kópavogsbæjar um samráð og samvinnu við íbúa. Greinina má lesa hér
26.Aug.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Þórarinn Ævarsson, varaformaður BBK, greinir frá því í grein í Morgunblaðinu í dag hvernig sviðsstjóri Skipulagsmála hjá Kópavogsbæ beitti BBK og íbúa blekkingum varðandi samráð um nýjar skipulagshugmyndir. Í greininni svarar Þórarinn ómaklegri og árás Birgis sem sviðsstjórinn birti í grein sinni í blaðinu fyrr í mánuðinum. Grein Þórarins má lesa hér.
21.Aug.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Mikill flýtir einkennir alla aðkomu starfsmanna bæjarskipulags að nýju skipulagi fyrir Kársnes. Þar á bæ sáu menn sér ekki fært að verja tíma til samvinnu með BBK. Þeir sáu sér heldur ekki fært að bíða til loka sumarfría með að kynna nýjar tillögur fyrir íbúum og til að kóróna allt ákváð svo meirihlutinn af óskiljanlegum ástæðum að kýla samþykki tillagnanna fram í gegnum bæjarstjórn eins og sagt er frá hér á vefnum.
Nú er nýtt spretthlaup hafið hjá bæjarskipulagi og markmiðið er að kýla í gegn samþykki íbúa við Kársnes-, Huldu- og Marbakkabraut á fyrirhugaðri húsagötu við Kársnesbraut. Þessi flýtir er þvílíkur og slíkur að íbúar hafa brugðist hvumsa við.
Með aðkomu BBK hafa íbúar hist og rætt málin auk þess sem þeir hafa ráðið lögfræðing til að gæta réttar síns gagnvart bænum.
BBK ítrekar enn og aftur að húsagata við hluta Kársnesbrautar er engan veginn ásættanleg lausn á þeim mikla umferðarvanda sem Kópavogsbær er að skipuleggja á Kársnesi. Það er þar af leiðandi engin ástæða fyrir íbúa við götuna til að funda með bænum og ræða útfærslur á húsagötu sem er bæði með öllu óásættanleg og algjörlega óraunhæf lausn.
21.Aug.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Síðustu fjórar vikurnar hafa sumarfrí haft áhrif á störf stjórnar BBK. Tíminn hefur engu að síður verið vel nýttur í undirbúningsvinnu fyrir baráttuna framundan, þ.m.t. upplýsingaöflun vegna fyrirhugaðrar auglýsingar um skipulagsbreytingar.
Á bæjarstjórnarfundi 22. júlí var upplýst að til stæði að auglýsa skipulagstillögurnar eftir fund samráðsnefndar um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins sem halda átti 12. ágúst. Samkvæmt heimildum BBK hefur erindið ekki enn verið lagt fyrir nefndina, en gera má ráð fyrir því að það gerist fljótlega.
Stjórn BBK er mætt á vaktina aftur full af orku eftir yndislegt sumar. Við vonumst eftir virkri þátttöku íbúa í baráttunni á næstu vikum.
20.Aug.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Í grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag segist Birgir Sigurðsson, sviðsstjóri Skipulagssviðs Kópavogs og fyrrverandi skipulagsstjóri bæjarins, ekki kannast við að harðar deilur hafi orðið um skipulagsmál á Kársnesi.
Við vitum að þegar deilurnar stóðu sem hæst sumarið 2007 var Birgir að sinna skipulagsmálum hinum megin við Fossvoginn, þ.e. í Reykjavík. Það er með ólíkindum að deilurnar í fyrra, sem náðu hámarki þegar met var sett og 1700 athugasemdir sendar bænum, hafi farið algjörlega fram hjá fyrrverandi skipulagsstjóra. Sé þetta raunin vakna áleitnar spurningar. Hvaða kynningu á málinu fékk Birgir þegar hann hóf verkefnið? Er kannski tilfellið að bæjarstjórinn og skipulagsstjórinn töldu enga ástæðu til að segja Birgi frá megnri óánægju íbúa á Kársnesi með fyrirhugaða íbúafjölgun? Var hann blekktur og honum sagt að allt væri í lukkunar velstandi milli bæjarins og íbúanna? Kannski að þarna sé komin skýringin á því að Birgir hafði ekki, þegar hann fundaði með BBK, einu sýnt samtökunum og málflutningi þeirra þá virðingu að lesa ítarlegar athugasemdir samtakanna frá síðasta hausti.
Birgir telur sig hafa haft “eðlilegt samráð” í þessu máli. Ef sviðsstjórinn telur framkomuna við BBK vera “eðlilegt samráð” þá eiga Kársnesingar og aðrir Kópavogsbúar varla von á góðu.
13.Aug.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Í grein í Morgunblaðinu í dag gerir Þórarinn Ævarsson, varaformaður BBK, meint “samráð” við samtökin að umtalsefni. Grein Þórarins má lesa hér.
02.Aug.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Í gær hélt bæjarskipulag kynningarfund með íbúum við Kársnesbraut, Huldubraut og Marbakkabraut til að ræða fyrirhugaða húsagötu við Kársnesbraut.
Íbúar sem sóttu fundinn höfðu samband við BBK að honum loknum og lýstu forundran og reiði yfir hugmyndunum og jafnframt sterkri andstöðu við áformin sem gera ráð fyrir að taka af lóðum nánast allra húsa við sunnanverða götuna á milli Kársnesbraut 9 og 51.
Furðu vekur að á sama tíma og Kópavogsbær réttlætir áform um gríðarlega íbúafjölgun á Kársnesi með mikilli tekjuaukningu - er bærinn ekki tilbúinn að leggja út í raunverulegar og kostnaðarsamar lausnir sem eru nauðsynlegar til að ráða við þá miklu umferð sem skapast af þessari fjölgun. Einnig er merkilegt að ekkert hefur heyrst um aðgerðir á öðrum stöðum en þessum litla kafla Kársnesbrautar. Hvaða úrbætur eru á dagskránni fyrir aðra íbúa hverfisins?
23.Jul.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Skipulagsumræðan hér í Kópavogi tekur stundum á sig furðulegustu mynd. Gott dæmi um það, var þegar Birgir Sigurðsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs rakti fyrir íbúa á Kársnesi hvernig smákaupmenn hefðu flúið hverfið hver af öðrum á undanförnum árum, á íbúafundinum 8. júlí sl.
Þessi hluti fjallaði sumsé um það, hvernig íbúum á Kársnesi hefur stöðugt fækkað og kaupmanninum á horninu þar með og hvernig við myndum endurheimta þessi glötuðu lífsgæði með hókuspókus göldrum byggðarþéttingar á Kársnesi.
Þetta er nú bara fyndið! Og segir kannski meira en margt annað um það rökþrot sem skipulagsumræðan hér á Kársnesi hefur ratað í að hálfu bæjarins.
Sjáum til. Ef við nú lokuðum Nóatúni í Hamraborg, Bónus verslununum í Smáranum og á Smiðjuveginum, bönnuðum Krónuna í Lindunum, létum setja fjöldatakmarkanir á aðra stórvörumarkaði, þá væri bara aldrei að vita nema kaupmaðurinn á horninu kæmi aftur í hverfið okkar? Með litlu rauðu innkaupakörfurnar, handpakkaða skyrið og búðarkassann.
Nei, gott fólk. Ekki einu sinni með þessum ráðstöfunum væri víst að þeir kæmu aftur. Sama hversu vænt okkur þykir um notalegu minninguna um kaupmanninn á horninu.
Eða er þessi umræða kannski til marks um það, að hægri höndin veit ekki hvað sú vinstri gjörir í skipulagsmálunum hérna? Veit önnur ekki af því, að þegar verið er að heimila opnun lágvöruverslana og stórmarkaða, að þá er hin sjálfkrafa að grafa undan smákaupmönnunum?
Já, það er ekki bara gott að búa í Kópavogi, heldur er það fyndið líka.
22.Jul.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Bæjaryfirvöld hafa farið mikinn um það samráð sem þau áttu við íbúa um nýjustu skipulagstillöguna fyrir Kársnesið. Eðlilega. Með því móti ýta þau undir það viðhorf, að þessi endaskipti á skipulagi hverfisins okkar, séu skipulögð í sátt við meirihluta íbúa (og gott ef ekki þorra þeirra).
Því miður er þessi mynd sem þarna er dregin upp af sátt og samlyndi ekki alls kostar rétt.
Hið rétta er að frá því í apríl og fram til 18. júní fóru fjórir fundir fram, fyrst einn með formanni BBK og sviðstjóra málaflokksins hjá Kópavogsbæ og að því búnu þrír fundir með stjórn BBK og fulltrúum skipulagsins og bæjarstjórnar.
Við getum strax dregið fyrsta fundinn út úr þessari jöfnu. Á honum var fyrst og fremst verið að staðfesta gagnkvæman vilja beggja aðila til að vinna að farsælli lausn málsins.
Með farsælu lausnina að leiðarljósi, mættu BBKingar á næstu þrjá fundi. Lengra nái vilji bæjaryfirvalda því miður ekki, a.m.k. ekki hvað varðar farsæla endinn á þessu máli og slitu þau síðan einhliða samráðið þann 18. júní sl.
Stjórn BBK harmar þessar málalyktir, sem verða að hennar mati raktar til þess, að bæjaryfirvöld sýndu þeim ábendingum og athugasemdum sem gerðar voru við þær “skipulagshugmyndir” sem voru uppi á borðinu vægast sagt takmarkaðan áhuga.
Þegar á reyndi kom æ betur í ljós, að þarna voru fullmótaðar “hugmyndir” til umræðu og tilgangur fundanna reyndist því vera að
gera forkönnun á viðhorfum, í stað þess að mynd lýðræðislegan samráðsvettvang.
Íbúafundurinn 8. júlí sl. staðfesti svo endanlega áhrifaleysi BBK í þessum efnum.
Ekki aðeins birtust “hugmyndirnar” í nýrri og allt annari útfærslu í kynningu Birgis Sigurðssonar, sviðsstjóra skipulags- og umhverfissvið, heldur var þess vandlega gætt að leyfa ekki fyrirspurnir, svo að sannleikurinn um samráðið kæmist ekki upp.
21.Jul.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Arna Harðardóttir formaður BBK er maður vikunnar í Fréttablaðinu laugardaginn 19. júlí.
Í niðurlagi segir: “Arna hefur aldrei haft sérstakan áhuga á stjórnmálum, að minnsta kosti ekki í hinum flokkspólitíska skilningi. Þess vegna kom það sumum á óvart þegar hún tók forystu í hagsmunasamtökum í skipulagsmálum. Aðrir segja að það sé einmitt dæmigert fyrir Örnu. Þarna hafi verið mál sem brann á mörgum íbúum á svæðinu og framtíð hennar nánasta samfélags í húfi. Framganga bæjaryfirvalda hafi ofboðið réttlætiskennd hennar en í stað þess að hugsa þeim þegjandi þörfina tók hún málin í sínar hendur. Áhugaleysi hennar á pólitík geri líka málstað hennar trúverðugan; hún hefur ekki áhuga á framapoti heldur helgast barátta hennar af einlægri trú á að í tillögum bæjaryfirvalda sé margt sem megi betur fara”
Greinina má sjá hér
21.Jul.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Í tilefni af ummælum Gunnars Birgissonar í gær vilja samtökin BBK koma eftirfarandi á framfæri:
Bæjarstjórinn heldur því fram að þrátt fyrir að hann hafi látið bæjarstjórn samþykkja að senda skipulagstillögur fyrir Kársnes í auglýsingu sé enn nægur tími til að móta hugmyndirnar áfram. Þetta er ekki rétt. Auglýst skipulagstillaga er ekki umræðuplagg. Hún er tilkynning bæjarfélags um áform um skipulagsbreytingar. Annað hvort er skipulagstillagan samþykkt eða hún er dregin til baka. Skipulagslög gera ráð fyrir að samráð við íbúa sé haft ÁÐUR en skipulagstillögur eru auglýstar. En í Kópavogi gilda önnur lögmál. Þar skjóta menn fyrst og spyrja svo.
16.Jul.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Afgreiðsla meirihluta bæjarstjórnar á svæðis- og aðalskipulagi fyrir vestanvert Kársnes á bæjarstjórnarfundi í dag eru gífurleg vonbrigði.
Þrátt fyrir að meirihlutanum hafi verið fullkunnugt um andstöðu BBK og íbúa Kársness við tillögurnar, gátu bæjarfulltrúar meirihlutans ekki beðið með að koma málinu í gegn og greiddu atkvæði gegn tillögu minnihlutans um að fresta bæri afgreiðslu málsins og vinna málið nánar í samvinnu við íbúa.
Málflutningur minnihlutans var hinsvegar mjög málefnalegur á fundinum og fulltrúar hans rökstuddu mál sitt ítarlega. Á fundinn mætti fjöldi Kársnesinga. Guðríður Arnardóttur (S) uppskar mikið lófatak þegar hún flutti tillögu minnihlutans um að fresta bæri afgreiðslu skipulagstillagnanna.
Okkur blöskrar virðingarleysið sem íbúm Kársness er sýnt með þessari hraðafgreiðslu málsins á hásumarfrístíma og að ekki skuli hafa verið staðið við loforð um samráð.
Eftirtaldir fulltrúar meirihlutans greiddu atkvæði með því að auglýsa skipulagið: Ómar Stefánsson (B), Gunnar Birgisson (D), Sigurrós Þorgrímsdóttir (D), Ásthildur Helgadóttir (D), Gunnsteinn Sigurðsson (D) og Margrét Björnsdóttir (D). Fulltrúar minnihlutans sem mótmæltu tillögunni voru: Guðríður Arnardóttir (S), Ingibjörg Hinriksdóttir (S), Flosi Eiríksson (S), Jón Júlíusson (S) og Ólafur Þór Gunnarsson (V).
15.Jul.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Í dag þriðjudag 15. júlí kl. 16, mun bæjarstjórn Kópavogs fjalla um afgreiðslu á tillögu um breytt aðal- og svæðisskipulag vegna Kársness. Þetta er aukafundur sem haldinn er eftir að meirihlutinn reyndi að kýla afgreiðslu málsins í gegnum lokaðan bæjarráðsfund s.l. fimmtudag, en bæjarstjórnarfundir liggja niðri vegna sumarfría. Þetta er nákvæmlega sama málsmeðferð og notuð var í fyrra til að koma reitum 4 og 7 í gegn í hasti, þrátt fyrir mótmælin sem þá voru uppi.
Það er með ólíkindum að einungis tveimur dögum eftir íbúafund þar sem bæjarskipulag kynnti nýjar tillögur sínar skuli eiga að troða málinu í gegn með hraðafgreiðslu framhjá eðlilegum farvegi. Þetta er sértaklega ámælisvert í ljósi þess að á íbúafundinum s.l. þriðjudag var fólk hvatt til að senda inn athugasemdir til bæjarins. Nú er að koma í ljós að það var aldrei ætlunin að taka neinar slíkar athugasemdir til greina. Enn og aftur sýnir meirihluti bæjarstjórnar íbúum Kársness slíkt virðingarleysi að ekki er hægt að láta þetta óátalið.
Fjölmargar spurningar vakna. Áttu íbúar virkilega ekki að fá að segja sína skoðun á tillögunum? Lítur meirihlutinn virkilega svo á að það sé slíkt smámál að tvöfalda íbúafjölda og umferð á Kársnesi að það beri að afgreiða með flýti svo lítið beri á í trássi við margítrekuð mótmæli íbúa? Hvers vegna liggur mönnum svona mikið á? Hvaða hagsmunir eru þarna í fyrirrúmi sem fá menn til að haga sér eins og þeir séu að missa af strætó? Af hverju er ekki hægt að fjalla um málið þegar bæjarstjórn er komin úr sumarfríi? Finnst mönnum þessi málsmeðferð lýsa virðingu við íbúana?
Við hvetjum alla til að mæta á opna bæjarstjórnarfundinn kl. 16 og hlusta og sjá það sem þar fer fram. Með því sýnum við andstöðu okkar við þessa málsmeðferð. Fundurinn verður haldinn á bæjarskrifstofunum Fannborg 2 kl. 16.
15.Jul.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Drögum réttan samanburð fram í dagsljósið
BBK hefur gagnrýnt Kópavogsbæ fyrir að draga fram í dagsljósið gamlar hugmyndir frá 2006 til að geta sagt að nýju tillögurnar fyrir Kársnesið séu minnkun frá fyrri tillögum. Á vefsíðu sinni þar sem nýja tillagan er kynnt er einnig kynning frá desember 2006. Þetta er ótrúlega bíræfið að ætla sér að slá ryki í augu íbúa með þessum hætti.
Rétt skal vera rétt. Í apríl í fyrra lagði Kópavogsbær fram endurskoðaðar tillögur, enda hafði áður komið fram í málflutningi bæjarins sjálfs að tillögurnar frá 2006 væru ekki raunhæfar. ÞAÐ VORU TILLÖGURNAR FRÁ ÞVÍ Í APRÍL 2007 SEM BBK OG AÐRIR ÍBÚAR KÁRSNESS VORU AÐ GAGNRÝNA Í FYRRASUMAR. Það voru tillögurnar frá því í apríl 2007 sem voru tilefni þess að íbúar Kársness settu upp mótmælaborða um allt hverfið. Kópavogsbær á að sjálfsögðu að bera nýju tillögurnar saman við þær tillögur sem verið var að mótmæla í apríl í fyrra, en ekki draga fram úr pússi sínu gamlar tillögur til þess eins að redda sér hagstæðari samanburði .
Hér er kynning bæjarins frá apríl 2007 með magntölum fyrir íbúða-, atvinnuhúsnæði og umferð. Við hvetjum fólk til að skoða þessar tillögur og bera saman við þær nýju. Þá sannast að um AUKNINGU er að ræða í nýju tillögunum, en ekki minnkun.
11.Jul.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Í tilefni af nýafstöðnum íbúafundi er rétt að rifja upp áskorun íbúafundar BBK sem var einróma samþykkt í Salnum 15. ágúst í fyrra, en hún hefur verið leiðarljós samtakanna í baráttunni fyrir bættu skipulagi á Kársnesi. Þar sem aðeins er að takmörkuðu leyti orðið við þessari áskorun í þeim nýju hugmyndum sem nú hafa litið dagsins ljós og nær eingöngu þau atriði er varða stækkun hafnarinnar, höfum við íbúar á Kársnesi enn umfangsmikið verk að vinna.
Áskorunin hljóðar svo:
—–
Opinn Íbúafundur vegna skipulagsbreytinga á Kársnesi haldinn í Salnum 15. ágúst 2007 samþykktir eftirfarandi ályktun. ÁSKORUN
Fundurinn skorar á bæjaryfirvöld í Kópavogi að falla frá áformum um:
- stækkun Kópavogshafnar og nýtingu hennar í atvinnuskyni
- gerð landfyllingar
- aukningu atvinnuhúsnæðis og hafnsækna starfsemi á hafnarsvæði
- frekari íbúafjölgun á Kársnesi
Nýjar hugmyndir varðandi landnýtingu á vestanverðu Kársnesi verði ekki lagðar fram nema
- að fyrir liggi nákvæm útfærsla á lausnum í umferðarmálum
- að tryggt sé að hljóðvist og svifryksmengun sé í samræmi við ítrustu kröfur um heilsuvernd
- að gerðar verði mælingar á núverandi ástandi og vandað mat á umhverfisáhrifum
- að kannaður verði vilji íbúa varðandi framtíðarskipulag á Kársnesi
- að sett verði fram heildrænt skipulag með hagsmuni íbúa að leiðarljósi
09.Jul.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Við leggjum til að næstu skref í skipulagsvinnu fyrir Kársnes verði að endurskoða frá grunni hugmyndir um blandaða byggð. Fallið verði frá frekari aukningu á atvinnuhúsnæði og þess í stað verði skipulagt fallegt íbúðarhverfi með skóla, íþróttamannvirkjum, verslunum og annarri þjónustu við íbúa - og síðast en ekki síst stór og aðgengileg útivistarsvæði sem gefa Kársnesingum, öðrum Kópavogsbúum og höfuðborgarbúum öllum möguleika á skemmtilegu mannlífi við þessa fallegu sjávarsíðu.
Íbúðabyggðin verði lágreist (1-3 hæðir) í takt við byggðina sem fyrir er á nesinu og þannig verði tryggt að skerðing á lífsgæðum þúsunda íbúa verði ekki fórnað fyrir hagsmuni örfárra fjárfesta og lánardrottna þeirra sem vilja arðsemiskröfunnar vegna byggja alltof þétt og alltof hátt.
Við segjum: Kársnesið fyrir fólkið!
09.Jul.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Þó að kjarninn í þeim tillögum sem kynntar voru á íbúafundi á þriðjudagskvöld, hvað varðar magn hafi verið þvert á vilja íbúa á Kársnesi, er ýmislegt jákvætt þarna á ferðinni:
1) Hafnsækin starfsemi er úr myndinni
2) Aukinn skilningur á sérstöðu Fossvogarins og mikilvægi þess að hann nýtist sem útivistarsvæði - ekki bara Reykjavíkurmegin
3) Heildrænt skipulag þar sem horft er til langs tíma, en ekki “bútasaumsskipulag”
4) Göngubrú yfir voginn sem getur orðið mjög gót viðbót verði hún skemmtilega útfærð
09.Jul.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Meira ekki minna
Nýju tillögurnar sem kynntar voru íbúum Kársnes á fundi í gærkvöldi fela í sér aukningu á umfangi - ekki minnkun.
Síðustu tillögur sem kynntar voru íbúum voru settar fram í apríl 2007. Það voru þær tillögur sem íbúar mótmæltu síðasta sumar.
Nú hefur bærinn tekið gamlar tölur fram í dagsljósið - til þess eins að nýju tillögurnar líti betur út.
En staðreyndirnar eru þessar:
- Eldri hugmyndir frá apríl 2007 gerðu ráð fyrir rúmlega 800 íbúðum - nú er lagt til að íbúðir verði 1000-1200. Aukningin er 15-34%
- Tillagan er mjög óljós hvað varðar viðbót í atvinnuhúsnæði - en síðasta tillaga miðaði við 54.000 m2. Í henni var eingöngu horft á reit 10 en nú er horft á stærra svæði. Við höfum beðið bæjarskipulag um nánari útskýringar á breytingum á atvinnuhúsnæði - en ekki fengið enn. Breyting á framsetningu af hálfu bæjarins gerir allan samanburð erfiðan. Hvað sem því líður er um að ræða aukningu á atvinnuhúsnæði frá því sem nú er.
- Búið er að skipta um verkfræðistofu og nýtt umferðarmódel dreifir umferð um allt Kársnes. Ef notaðar eru sömu forsendur um umferð og gert var þegar gömlu tillögurnar voru lagðar fram verður umferð á Kársnesbraut yfir 20.000 bílar - sem er meira en tvöföldun.
Sviðsstjóri bæjarskipulags fór með rangt mál á fundinum í gær - þessar tillögur fela ekki í sér minnkun frá síðustu tillögum - þetta er aukning á umfangi þrátt fyrir ítrekaðar athugasemdir íbúa um að umfang eldri tillagna væri of mikið. Þessi framkoma við Kársnesinga er með ólíkindum.
09.Jul.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Okkur blöskrar það virðingarleysi sem bæjaryfirvöld í Kópavogi sýna íbúum á Kársnesi með tímasetningu á íbúafundi á hásumarfrístíma 8. júlí.
Svo virðist sem það sem markmið Kópavogsbæjar að sem fæstir íbúar hafi tök á að kynna sér skipulagstillögur fyrir Kársnes. Þetta gera þeir enn og aftur þrátt fyrir mótmæli íbúa. Svona lítur afrekalistinn út:
- “KORTERI FYRIR JÓL” - á jólaföstunni þann 17. desember 2006 voru fyrstu hugmyndirnar kynntar í Salnum og frestur upphaflega gefinn til áramóta til að skila athugasemdum.
- Á HÁSUMARFRÍSTÍMA - þann 3. júlí 2007 - voru breytingar á aðal- og deiliskipulagi auglýstar og íbúum gefinn frestur fram í ágúst (enn sumarfrístími) til að andmæla.
- Fyrir MESTU FERÐAHELGI ársins 2008 - föstudaginn 4. júlí 2008 - var auglýstur fundur á vegum bæjarins í Morgunblaðinu með FJÖGURRA DAGA FYRIRVARA.
Þetta getur ekki verið tilviljun. Það er bæjarstjórn og bæjarskipulagi til skammar hvernig þau ferðast sem þjófar að nóttu í þeirri von að sem fæstir verði þeirra varir.
08.Jul.08
Almennt
Read more
Comments (0)
Fulltrúar BBK hafa hitt fulltrúa bæjarstjórnar til að ræða framtíðarskipulag hafnarsvæðisins í ljósi þess að fallið hefur verið frá upphaflegum hugmyndum.
Báðir aðilar lýstu á þeim fundi yfir vilja til að vinna í sameiningu að hugmyndum um skipulags svæðsins og var eining um þá tillögu BBK að kalla íbúasamtök Vesturbæjar að þeirri vinnu.
Stjórnarmenn BBK eru fullir tilhlökkunar að takast á við þetta verkefni.
08.Nov.07
Almennt
Read more
Comments (0)
Kópavogsbær tók formlega ákvörðun á fundi skipulagsnefndar á þriðjudaginn sem var staðfest af bæjarráði í dag, að hafna skipulagstillögunum sem lagðar voru fram í júlí sl. um breytt aðal-, deili- og svæðisskipulag fyrir hafnarsvæði Kársness. Tillögunum var hafnað á grundvelli innsendra athugasemda.
Stjórn samtakanna Betri byggð á Kársnesi óskar öllum félögum samtakanna og öðrum sem sendu inn athugasemdir innilega til hamingju með þessi málalok. Þessi niðurstaða hefði aldrei orðið nema vegna þess gríðarlega fjölda íbúa sem ákvað að sitja ekki hjá og sætta sig við orðinn hlut, heldur að láta sannfæringu sína ráða og koma skoðunum sínum á framfæri.
Samtökin Betri byggð á Kársnesu eru stolt af baráttuviljanum og samtakamættinum íbúar Vesturbæjar Kópavogs sýndu í þessu máli og sem hefur nú verið endanlega staðfestur með með niðurstöðu Skipulagsnefndar 8. nóvember.
Samantekt athugasemda sem unnin var að bænum er hægt að nálgast hér.
08.Nov.07
Almennt
Read more
Comments (0)
Í sjónvarpsviðtali á RÚV í kvöld segir Þórarinn Ævarsson, varaformaður BBK, þá ákvörðun bæjarstjóra Kópavogs að falla frá hugmyndum um uppskipunarhöfn og hafnsækna starfsemi vera skref í rétta átt, en ítrekar að baráttunni sé hvergi nærri lokið. Hann segir þó að þessi niðurstaða gæti orðið tilefni til að mótmælaborðarnir verði teknir niður, a.m.k. tímabundið. Um sé að ræða áfangasigur og málið þar af leiðandi geymt en ekki gleymt.
17.Sep.07
Almennt
Read more
Comments (2)
Almenn andstaða Kársnesbúa við uppskipunarhöfn og hafnsækna atvinnustarfsemi, hefur gert að verkum að bæjaryfirvöld virðast sjá skipulagsmál Kársnessins í alveg nýju ljósi. Með þessu útspili er klárlega verið að mynda umræðugrunn um framhaldið. Hvert það verður, á þó eftir að koma í ljós. Í kynningu sinni á opnum fundi Sjálfstæðismanna í Kópavogi, stiklaði bæjarstjórinn þó eingöngu á því helsta og ljóst að Betri byggð á Kársnesi getur ekki tjáð sig efnislega um þessar nýju tillögur fyrr en þær hafa verið kynntar formlega fyrir íbúasamtökunum. Byrjunin lofar góðu, en enn er of snemmt að fullyrða nokkuð. Það mun vonandi koma í ljós á næstu dögum hvort og þá hvenær við íbúar á Kársnesi getum fagnað mikilvægum áfangasigri í baráttunni fyrir ásættanlegum skipulagsbreytingum.
15.Sep.07
Almennt
Read more
Comments (4)
Gunnar Birgisson kynnti á félagsfundi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi í morgun, fyrstu hugmyndir bæjaryfirvalda að nýju skipulagi fyrir vestanvert Kársnesið. Athygli vakti að fallið er frá fyrri tillögum um hafnsækna atvinnustarfsemi á uppfyllingu og stækkun Kópavogshafnar. Ekki verður framsaga bæjarstjórans skilin á annan veg, en að uppskipunarhöfn sé komin af dagskrá og þar með hafa myndast forsendur fyrir viðræður bæjaryfirvalda og fulltrúa Kársnesbúa um framtíðarskipulag Kársnessins. Uppskipunarhöfnin hefur, ásamt hafnsæknu atvinnustarfseminni, verið meðal þess sem við í BBK höfum gert hvað alvarlegustu athugsemdirnar við.
15.Sep.07
Almennt
Read more
Comments (0)
Niðurstaða liggur fyrir um fjölda innsendra athugasemda vegna Hafnarsvæðisins. Heildarfjöldi var 1674 athugasemdir, þar af bárust 1117 af Kársnesi og 283 annars staðar úr Kópavogi, eða alls 1400 frá Kópavogi auk 271 athugasemda annars staðar frá. Eins og áður hefur komið fram, hefur aldrei áður borist jafn mikill fjöldi athugasemda við nokkra auglýsta skipulagsbreytingu hjá Kópavogsbæ.
1700 athugasemdir er gríðarlegur fjöldi, sama í hvaða samhengi það er skoðað. Þetta er óyggjandi staðfesting á þeirri miklu óánægju íbúa sem komið hefur skýrt fram með margvíslegum hætti undanfarnar vikur og glögglega hefur mátt sjá á mótmælaborðum í hverfinu. Niðurstaðan ber vitni þeirri sterku samstöðu sem ríkt hefur meðal Kársnessbúa í málinu og staðfestir þann mikla stuðning sem málstaður samtakanna Betri byggðar á Kársnesi hefur notið.
Tíðinda er að vænta innan skamms, því næstkomandi þriðjudag er fundur hjá skipulagsnefnd og ólíklegt annað að málið verði þar á dagskrá. Það verður spennandi að fylgjast með þróun mála, en í öllu falli er ljóst að bæjaryfirvöld þurfa ekki lengur að velkjast í vafa það hver vilji íbúanna er í þessu máli.
13.Sep.07
Almennt
Read more
Comments (0)
Nú þegar haustlægðirnar fara yfir ein af annari er nauðsynlegt að við pössum vel upp á borðana okkar, að þeir séu vel festir niður svo þeir fjúki ekki. Vonandi verður tilefni til að taka borðana niður fljótlega, en á meðan þeir eru uppi verðum við að passa upp á að þeir líti vel út svo að þeir fari ekki að vekja neikvæð viðbrögð hjá þeim sem ferðast um hverfið okkar.
10.Sep.07
Almennt
Read more
Comments (0)
Síðustu fréttir eru þær að skipulagsnefnd fjallaði um málið á fundi sínum 4. sept. og þar kom fram að bæjarskipulagi væri falið að taka saman umsögn um innsendar athugasemdir. Samkvæmt skipulagslögunum hefur bæjarstjórn 8 vikur til að fjalla um málið. Að þeim tíma loknum ber að senda tillöguna til Skipulagsstofnunar, nema bæjarstjórn samþykki að breyta skipulagstillögunni í grundvallaratriðum. Skipulagsstofnun hefur síðan 4 vikur samkvæmt lögunum til að ákveða hvort hún mælir með eða gegn tillögunni í umsögn til Umhverfisráðherra, sem veitir endanlegt samþykki.
Vonandi munu bæjaryfirvöld þó ekki nýta allar 8 vikurnar til að ákveða með hvaða hætti tekið verður tillit til þeirra athugasemda sem bárust!
05.Sep.07
Almennt
Read more
Comments (0)